2013-08-23 13:29:54 CEST

2013-08-23 13:30:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsvirkjun - Ársreikningur

Sex mánaða uppgjör Landsvirkjunar


Aukið handbært fé frá rekstri

Helstu atriði árshlutareiknings



  -- Rekstrartekjur námu 206,7 milljónum USD (24,8 ma.kr.) sem er 1,9% hækkun
     frá sama tímabili árið áður.1
  -- EBITDA nam 165,3 milljónum USD (19,8 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 79,9% af
     tekjum, en var 80,8% á sama tímabili í fyrra.
  -- Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 67,1 milljón USD (8,1 ma.kr.),
     en var 47,7 milljónir USD á sama tímabili árið áður.
  -- Tap tímabilsins að teknu tilliti til óinnleystra liða var 52,2 milljónir
     USD (6,3 ma.kr.) en á sama tímabili árið áður var hagnaður 9 milljónir USD.
     Tapið skýrist  einkum af gangvirðisbreytingum á innbyggðum álafleiðum
     orkusölusamninga sem námu 169,5 milljónum USD til gjalda á tímabilinu.
  -- Handbært fé frá rekstri nam 134,4 milljónum USD (16,1 ma.kr.) sem er 13,8%
     hækkun frá sama tímabili árið áður.
  -- Nettó skuldir lækkuðu um 30,1 milljón USD frá áramótum og voru í lok júní
     2.405,5 milljónir USD (288,7 ma.kr).



Hörður Arnarson, forstjóri:



„Grunnreksturinn, raforkuvinnsla og afhending hefur gengið vel á fyrri hluta
ársins og jukust raforkukaup viðskiptavina Landsvirkjunar frá fyrra tímabili um
5% eða sem nemur um 300 GWst. Góður gangur er í byggingu Búðarhálsvirkjunar en
framkvæmdir hafa staðið yfir í þrjú ár og eru nú á lokastigi. Framvinda hefur
verið góð og er verkið á áætlun. 

Afkoma á fyrri árshelmingi er viðunandi í ljósi efnahagsástands í heiminum.
Það er ánægjulegt að við sjáum aukningu í handbæru fé frá rekstri sem
endurspeglar styrkleika fyrirtækisins og getu þess til að standa undir
skuldbindingum sínum. Nettó skuldir fyrirtækisins halda áfram að lækka, nú um
30 milljónir USD og hafa nettó skuldir fyrirtækisins því lækkað um samtals 418
milljónir USD á síðastliðnum fjórum árum sem eru jákvæð tíðindi. Engu að síður
er  mikilvægt  að haldið verði áfram á sömu braut í ljósi skuldsetningar
fyrirtækisins.“ 



Rekstraryfirlit

Tiltæki aflstöðva fyrirtækisins var 99,7% á tímabilinu að undanskildu
skipulögðu viðhaldi. Raforkuvinnslan nam 6.399 GWst í samanburði við 6.096 GWst
á fyrri hluta ársins 2012.  ­Óvenjulegt veðurfar síðastliðinn vetur leiddi til
þess að á vormánuðum var staða miðlunarlóna á norður- og austurlandi verri en
spár gerðu ráð fyrir. Af þessum sökum var tímabundið dregið úr raforkuvinnslu í
Blöndu- og Fljótsdalsstöð en vinnsla þess í stað aukin í aflstöðvum á
vatnasviði Tungnaár og Þjórsár.  Gengið hefur frekar hægt að fylla miðlunarlón
Landsvirkjunar það sem af er sumars en horfur eru viðunandi fyrir árið í heild. 



Lykiltölur úr rekstri - framsetning stjórnenda

Helstu stærðir árshlutareiknings í þúsundum Bandaríkjadala: Sjá
fréttatilkynningu 







Nánari upplýsingar veitir:

Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs

s. 515 9000