|
|||
2009-12-15 10:59:10 CET 2009-12-15 11:00:10 CET REGULATED INFORMATION BYR - sparisjóður - FyrirtækjafréttirFjárhagsleg endurskipulagning Byrs sparisjóðsFjármálaráðuneytið fundaði í gær með stjórnendum Byrs sparisjóðs, ásamt ráðgjöfum beggja aðila og fulltrúum kröfuhafa. Fjallað var um forsendur fyrir því að stjórnvöld leggi nýtt stofnfé í Byr vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar sparisjóðsins, sem ætlað er að tryggja að hann uppfylli skilyrði fyrir eiginfjár- og lausafjárstöðu og um rekstrarhæfi. Að mati ráðuneytisins náðist á fundinum mikilvægur áfangi í átt að endanlegu samkomulagi og að því að treysta varanlega fjárhagslegar stoðir Byrs. Í byrjun nýs árs eru fyrirhugaðar frekari viðræður við Byr og kröfuhafa um endanlega útfærslu á fyrirliggjandi lausn. Er þetta í samræmi við markmið stjórnvalda um að styðja við endurskipulagningu sparisjóðakerfisins á Íslandi. Með lögum nr. 125/2008 var fjármálaráðuneytinu veitt heimild til að leggja sparisjóðum til nýtt stofnfé. |
|||
|