2014-06-10 14:11:46 CEST

2014-06-10 14:12:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 23. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 512.500 eigin hluti fyrir
13,3 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími     Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð   Hlutir í eigu TM eftir  
g                    hlutir         rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
 2.6.2014  13:29    500.000       25,90     12.950.00          3.500.000        
                                                0                               
--------------------------------------------------------------------------------
 4.6.2014  12:58     12.500       26,00      325.000           3.512.500        
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals             512.500                 13.275.00                           
                                                0                               
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar 30. apríl 2014. 

TM hefur nú keypt samtals 3.512.500 hluti í félaginu sem samsvarar 16,7% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 98,9 milljónum króna. TM á nú samtals 0,46% af
heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en
31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is