2024-05-22 11:33:15 CEST

2024-05-22 11:33:15 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. maí 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. maí 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 20. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 600.000 eigin hluti að kaupverði 46.450.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
13/5/2410:04100.00075,007.500.0006.676.354
14/5/2414:30100.00076,007.600.0006.776.354
15/5/2412:41100.00076,007.600.0006.876.354
15/5/2414:36100.00076,507.650.0006.976.354
16/5/2411:28100.00079,507.950.0007.076.354
17/5/2410:28100.00081,508.150.0007.176.354
Samtals 600.000 46.450.0007.176.354


Reitir hafa nú keypt samtals 1.626.354 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 32,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 122.413.373 kr. sem samsvarar 28,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 425 milljónir króna.

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 5.576.354 eigin hluti fyrir 430.387.546 kr.

Reitir eiga nú samtals 7.176.354 eigin hluti, eða um 1,01% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 704.373.646.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.