|
|||
2021-10-28 17:40:18 CEST 2021-10-28 17:40:19 CEST REGULATED INFORMATION Festi hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Festi hf.: Afkoma á 3. ársfjórðungi 2021Helstu niðurstöður
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi: „Áherslur okkar á bættan rekstur er áfram að skila sér á þriðja ársfjórðungi þar sem tekjur aukast um 15% en EBITDA um 29% miðað við sama tíma í fyrra. Reksturinn hjá öllum félögum samstæðunnar var umtalsvert betri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. Mikil vinna liggur hér að baki og vill ég nota tækifærið og þakka starfsmönnum fyrir þeirra frábæra starf. Áherslur hafa einnig verið á að auka enn við þjónustu og góða upplifun viðskiptavina með fjárfestingum í stafrænum lausnum. Nýjasta birtingarmynd þeirrar vegferðar er „Skannað og skundað“ lausn Krónunnar sem gerir viðskiptavinum kleift að nota farsímann við innkaupin í verslunum félagsins. Nýjar vefverslanir ELKO og N1 hafa einnig farið í loftið á árinu með aukinni þjónustu við viðskiptavini okkar. Áhrif COVID faraldursins gætti enn á ársfjórðungnum þó þau verði sífellt minni. Aukin eftirspurn á heimsmarkaði ásamt hnökrum í mikilvægum aðfangakeðjum hefur leitt til vöruskorts og hækkandi vöruverðs á síðustu misserum. Horfur í rekstrinum eru þó áfram mjög góðar og er félagið vel í stakk búið til að takast á við verkefnin framundan“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi. Viðhengi |
|||
|