|
|||
2008-05-28 10:54:20 CEST 2008-05-28 10:55:20 CEST REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir- Skuldabréfaútboð Marel Food Systems hf. - ViðbótarupplýsingarSkuldabréfaútboði Marel Food Systems hf. sem fram fór dagana 22. og 23. maí síðastliðinn er lokið. Seld voru skuldabréf að andvirði 6 milljarða króna (€ 52 milljónir). Auðkenni skuldabréfaflokksins er MARL 08 1 og er ISIN númer bréfanna IS0000018083. Sérhver nafnverðseining er ISK 5.000.000 og var útgáfudagur skuldabréfaflokksins þann 20. maí 2008. Vextir greiðast á gjalddaga höfuðstóls sem er að liðnu einu ári. Engin hlunnindi eru tengd skuldabréfunum, þau eru ekki tryggð með veðum og án ábyrgðar þriðja aðila. Fyrirhugað er að sækja um skráningu skuldabréfaflokksins í kauphöll Nasdaq OMX Exchange Iceland. Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna. |
|||
|