|
|||
2009-04-24 13:28:00 CEST 2009-04-24 13:29:06 CEST REGULATED INFORMATION Teymi hf. - FyrirtækjafréttirInnköllun umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunumInnköllun Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum 21. apríl 2009 var Teymi hf. kt. 571106-0940, Suðurlandsbraut 18, Reykjavík, veitt heimild til að leita nauðasamnings. Hér með er skorað á alla þá sem telja sig eiga samningskröfu skv. 1. mgr. 29. gr. laga nr. 21/1991 á hendur félaginu, að lýsa þeim fyrir undirrituðum umsjónarmanni með nauðasamningsumleitunum, innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar innköllunar. Kröfulýsingar skulu sendar á nafn umsjónarmanns að Lágmúla 7, 108 Reykjavík. Fundur verður haldinn með þeim lánardrottnum, sem eiga atkvæðisrétt um samningsfrumvarp skuldarans, á skrifstofu undirritaðs að Lágmúla 7, Reykjavík, fimmtudaginn 4. Júní 2009 kl. 14:00, til þess að greiða þar atkvæði um frumvarpið. Reykjavík, 21. apríl 2009 Brynjar Níelsson, hrl. |
|||
|