2014-07-24 17:23:04 CEST

2014-07-24 17:24:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Fyrirtækjafréttir

Standard & Poor’s (S&P) breytir horfum fyrir Tryggingamiðstöðina (TM) í jákvæðar


Standard & Poor's (S&P) hefur í dag breytt horfum sínum fyrir
Tryggingamiðstöðina (TM) úr stöðugum í jákvæðar. Fjárhagsleg styrkleikaeinkunn
félagsins BBB- er jafnframt staðfest en það er sama einkunn og S&P hefur veitt
langtímaskuldbindingum íslenska ríkisins. Breyting á horfum fyrir TM er gerð í
kjölfar þess að S&P breytti horfum sínum fyrir íslenska ríkið í jákvæðar þann
18. júlí síðast liðinn. 

TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá S&P, eitt íslenskra
tryggingafélaga.  Matið veitir TM tækifæri til að sækja vátryggingaviðskipti á
erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins. 

Meðfylgjandi er fréttatilkynning S&P um niðurstöður matsins á TM.

Í henni kemur fram að kjarnaeinkunn TM sé BBB en vegna þess hversu stór hluti
vátryggingarekstrar og fjárfestinga TM er á íslenskum markaði fylgi horfur
félagsins horfum fyrir langtímaskuldbindar íslenska ríkisins. 





Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM

S: 515-2609

sigurdur@tm.is