2009-04-30 13:08:09 CEST

2009-04-30 13:09:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Niðurstöður hluthafafunda

- Niðurstöður aðalfundar 30. apríl 2009


Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf., sem haldinn var 30. apríl 2009, voru
eftirfarandi tillögur samþykktar: 

1. Starfskjarastefna félagsins, sbr. 79. gr. a hlutafélagalaga:

“1. Tilgangur.

Starfskjarastefna Tryggingamiðstöðvarinnar hf. miðar að því að
Tryggingamiðstöðin, ásamt dótturfélögum, sé samkeppnishæf og geti ráðið til sín
framúrskarandi starfsfólk í þeim tilgangi að tryggja áframhaldandi vöxt og
velgengni félagsins. Í því skyni ber að hlúa vel að kjörum stjórnenda félagsins
þannig félagið fái notið starfskrafta þeirra sem allra best. Starfskjarastefnan
nær til helstu grundvallaratriða í starfs- og launakjörum forstjóra og
stjórnenda félagsins. Stefnan er liður í að gæta langtímahagsmuna eigenda
félagsins, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila með skipulegum, einföldum og
gegnsæjum hætti. 

2. Starfskjör stjórnarmanna.

Þóknun til stjórnarmanna fyrir komandi starfsár skal ákveðin á aðalfundi ár
hvert og skal þóknunin taka mið af þeim tíma sem stjórnarmenn verja til
starfans, þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir og afkomu félagsins.
3. Starfskjör forstjóra.

Starfskjör forstjóra skulu ítarlega tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi,
þar á meðal föst laun, árangurstengdar greiðslur, kaupréttur, lífeyrisréttindi,
orlof, önnur hlunnindi og uppsagnarfrestur, svo og, eftir atvikum,
eftirlaunaréttindi og greiðslur við starfslok.
4. Starfskjör stjórnenda.

Starfskjör annarra æðstu stjórnenda félagsins, sem nánar skulu tilgreind í
skriflegum ráðningarsamningum, skulu einnig taka mið af sjónarmiðum 3. gr.
eftir því sem við á.
5. Endurskoðun starfskjarastefnu. Upplýsingagjöf.

Starfskjarastefna félagsins skal tekin til endurskoðunar ár hvert og borin
undir aðalfund félagsins til samþykktar eða synjunar. 

Á næsta aðalfundi ber stjórn að gera grein fyrir kjörum stjórnenda og
stjórnarmanna félagsins auk þess að skýra frá framkvæmd starfskjarastefnunnar.
Frávik frá starfskjarastefnunni skulu rökstudd sérstaklega í hverju tilviki og
færð til bókar.
Gera skal árlega grein fyrir launum og öðrum starfskjörum stjórnar og æðstu
stjórnenda í ársskýrslu félagsins.” 


2. Þóknun til stjórnar fyrir starfsárið 2008:

“Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf., haldinn 30. apríl 2009, samþykkir að
þóknun stjórnarmanna verði með eftirfarandi hætti: Þóknun formanns verði
300.000 krónur á mánuði og annarra stjórnarmanna 150.000 krónur.” 

3. Endurskoðendur félagsins.

Samþykkt var tillaga um að endurskoðunarfélagið KPMG endurskoðun hf. yrði
endurskoðandi félagsins starfsárið 2009.
Stjórn félagsins.

Í aðalstjórn félagsins fyrir næsta starfsár voru kjörin:

Eva Bryndís Helgadóttir, kt. 190572-3909,
Gunnar Karl Guðmundsson, 141259-2029, og
Jón Sigurðsson, 180378-4219.

Að aðalfundi loknum kom nýkjörin stjórn saman til fundar og skipti með sér
verkum. Gunnar Karl Guðmundsson var kjörinn formaður stjórnar, Jón Sigurðsson
varaformaður og Eva Bryndís Helgadóttir meðstjórnandi.