2008-10-07 22:37:00 CEST

2008-10-07 22:37:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbanki Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Fitch lækkar lánshæfismatseinkunn Landsbankans í B / B / F



Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað
lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Landsbankans í 'B' úr
'BBB' , einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga
bankans í 'B' úr 'F3' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem 'F' úr
'C'. Lánshæfismatseinkunnir bankans eru á athugunarlista.

Langtímaskuldbindingar dótturfélags bankans í Bretlandi, Landsbanki
Heritable Bank, voru einnig lækkaðir í 'BB' úr 'BBB', einkunnir vegna
innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem 'B' úr  'F3'
og einkunn fyrir lækkuð í 'D' frá 'C'. Lánshæfismatseinkunnir bankans
eru á athugunarlista.

Nánari rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu hér
meðfylgjandi.

Frekari upplýsingar veitir Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri
Alþjóðasviðs í s. 820-6340.