2014-03-07 16:25:39 CET

2014-03-07 16:26:41 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund HB Granda 21. mars 2014


Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.



  1. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.



  1. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.



  1. Tillaga félagsstjórnar að nýjum samþykktum.



  1. Tillaga félagsstjórnar að starfskjarastefnu.



  1. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.



  1. Kosning stjórnar félagsins.



  1. Kosning endurskoðenda.



  1. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.



  1. Önnur mál, löglega upp borin.



Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30



Tillögur

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 21. mars 2014 samþykkir að greidd verði 1,50
kr. á hlut í arð vegna ársins 2013, alls að fjárhæð 2.720.488.085 kr. Arðurinn
verður greiddur 25. apríl 2014. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir
bréfunum er 21. mars 2014 og arðleysisdagur því 24. mars 2014. 

Arðsréttindadagur er 26. mars 2014 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í
hlutaskrá að loknu uppgjöri verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 12:00 þann
26. mars 2014) 

Tillaga um þóknun til stjórnarmanna

Þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 150.000 kr. á mánuði og formaður fái
tvöfaldan hlut. 

Tillaga félagsstjórnar að nýjum samþykktum

Sjá viðhengi

Tillaga félagsstjórnar að starfskjarastefnu

Sjá viðhengi

Kosning stjórnarFramboðsfrestur rennur út fimm dögum fyrir aðalfund.  Upplýsingar um
frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveim dögum fyrir
aðalfund. 

Kosning endurskoðanda

Endurskoðunarfélag: KPMG ehf.



Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu.
Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki
yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við
síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.