2014-03-14 17:36:34 CET

2014-03-14 17:37:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Byggðastofnun - Ársreikningur 2013


Ársreikningur Byggðastofnunar 2013

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2013, var staðfestur af stjórn
stofnunarinnar 14. mars 2014. 

Hagnaður ársins nam 188,9 milljónum króna.  Til samanburðar nam tap ársins 2012
152,8 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok árs 2013 skv. eiginfjárákvæðum
laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 16,0% 

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr.
347/2000.  Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og
atvinnulífs á landsbyggðinni.  Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að
undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að
markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi.
Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra.  Byggðastofnun
fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum.
Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við
atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin getur gert eða látið gera
áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og
atvinnu í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð
svæðisskipulags samkvæmt skipulagslögum. 

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar árið 2013

  -- Hagnaður ársins 2013nam 188,9 milljónum króna.
  -- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 16,0% en skal að
     lágmarki vera 8%
  -- Hreinar vaxtatekjur voru 437,4 milljónir króna eða 43,8% af vaxtatekjum,
     samanborið við 593,8 milljónir (47,9% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á
     árinu 2012.
  -- Laun og annar rekstrarkostnaður nam 373,6 milljónum króna samanborið við
     312,7 milljónir árið 2012
  -- Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreytingar hlutafjár voru 51,0
     milljónir króna en voru 444,9 milljónir 2012.
  -- Eignir námu 14.872 milljónum króna og hafa lækkað um 1.866 milljónir frá
     árinu 2012.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 11.570 milljónir.
  -- Skuldir námu 12.458 milljónum króna og lækkuðu um 2.091 milljón á árinu
     2012.
  -- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 22,6 milljónum króna. 

Um ársreikninginn

Hagnaður ársins nam 188,9 milljónum króna, samanborið við 152,8 milljón króna
tap á árinu 2012.  Skýrist þetta fyrst og fremst með því að 5. júní 2013
staðfesti Hæstiréttur Íslands úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli
Byggðastofnunar gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hf., þar sem krafa
Byggðastofnunar að fjárhæð 271,3 milljónir króna var viðurkennd sem
forgangskrafa. Höfðu 238 milljónir króna af þeirri kröfu áður verið
afskrifaðar. 

Alþingi samþykkti í fjárlögum 2012 heimild til að efla eigið fé Byggðastofnunar
um allt að 2.000 milljónir króna.  Af því framlagi voru 1.750 milljónir króna
greiddar til stofnunarinnar í janúar 2012 en eftirstöðvarnar, 250 milljónir
króna greiddar í janúar 2013. 

Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 16,0% í lok árs.

Horfur

Fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra var á árinu 2013 rekið dómsmál þar sem
tekist var á um lögmæti þess að skuldbreyta verðtryggðum lánum í íslenskum
krónum í lán í erlendum myntum með útgáfu viðauka.  Dómur féll þar 29. nóvember
2013, þar sem fallist var á lögmæti svo skuldbreyttra lána Byggðastofnunar og
hefur dómnum ekki verið áfrýjað.  Uppreiknuð lán stefnanda nema nú um 210,1
milljónum króna en verði fallist á kröfur hans munu þau lækka um allt að 50% 
Samsvarandi útlán hjá stofnuninni nema að kröfuvirði 856,8 milljónum króna.
Ekki hefur verið fært sérstakt varúðarframlag á afskriftarreikning vegna þessa.
 Að mati lögmanns Byggðastofnunar benda dómar Hæstaréttar, sem fallið hafa í
sambærilegum málum (sbr. t.d. Hrd. 498/2013), eindregið til þess að
Byggðastofnun muni verða sýknuð ef málinu verður áfrýjað. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í
síma   455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is