|
|||
2009-09-24 14:51:44 CEST 2009-09-24 14:52:33 CEST REGULATED INFORMATION Alfesca hf. - Fyrirtækjafréttir- Innlausnartímabili lýkurInnlausnartímabili vegna hluta í Alfesca hf. lauk kl. 12:00 fimmtudaginn 24. september 2009. Hlutir í eigu annarra hluthafa en samstarfsaðila verða fluttir til Lur Berri Iceland ehf. og greiðsla fyrir hlutina verður innt af hendi í síðasta lagi 29. september 2009 inn á reikninga samkvæmt innsendum framsalseyðublöðum eða inn á einstaklingsbundna geymslureikninga hjá Nýja Kaupþingi banka hf. Eftir innlausnina munu Lur Berri Iceland ehf. og samstarfsaðilar þess eiga 99,43% af útgefnu hlutafé í Alfesca hf. og fara með allan atkvæðisrétt í félaginu þar sem Alfesca hf. á eigin hluti sem nema 0,57% útgefins hlutafjár. |
|||
|