2014-09-09 18:00:28 CEST

2014-09-09 18:01:29 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn gefur út nýjan flokk sértryggðra skuldabréfa, LBANK CB 19


Landsbankinn lauk í dag sölu á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa.
Skuldabréfin eru óverðtryggð með föstum 6,8% vöxtum til fimm ára. Fjárhæð
útgáfunnar nemur 960 milljónum króna en þar af voru 900 milljónir króna seldar
til fjárfesta á markaði. Mismunurinn verður nýttur vegna viðskiptavaktar með
bréfin. 

Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq OMX Iceland þann
17. september 2014. Samið hefur verið við Straum fjárfestingabanka um
viðskiptavakt með bréfin. 

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með
vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um
skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. 



Nánari upplýsingar veita:

Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011