|
|||
2024-09-26 11:46:12 CEST 2024-09-26 11:46:13 CEST REGULATED INFORMATION Íþaka fasteignir ehf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Íþaka fasteignir ehf.: Árshlutareikningur fyrstu 6 mánuði 2024Stjórn Íþöku fasteigna ehf. samþykkti á fundi sínum í dag, fimmtudaginn 26. september 2024, árshlutareikning félagsins fyrir fyrri árshelming 2024. Uppgjör félagsins hefur nú verið birt. Helstu atriði árshlutareiknings:
Árshlutareikningur félagsins er meðfylgjandi og er einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.ithaka.is/fjarmala-og-markadsupplysingar. Þann 15. júlí 2024 var staðfestur samruni félagsins við annars vegar félagið BLT-lyftur ehf. og hins vegar útskiptan hluta félagsins Merkúr ehf. Samruninn miðar við upphafsdag 1. janúar 2024. Við samrunann runnu inn í félagið fasteignir að Dalvegi 30 og Laugavegi 95-99. Félagið gaf út nýjan flokk skuldabréfa í flokknum ITHAKA 300834 sem stefnt er að verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í október 2024. Þá voru tekin til viðskipta í september 2024 skuldabréf í flokknum ITHAKA 051233 sem félagið gaf út undir lok árs 2023. Áður hefur félagið gefið út skuldabréf í flokkunum ITHAKA 291128 og ITHAKA 070627 og voru skuldabréf í báðum flokkum tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í ágúst 2022. Íþaka fasteignir ehf. rekur og leigir út atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að mæta húsnæðisþörf fyrirtækja. Félagið stefnir að því að vera styrk stoð í íslensku samfélagi með heilnæmt og sveigjanlegt húsnæði sem uppfyllir þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is. Viðhengi |
|||
|