2015-05-21 12:02:11 CEST

2015-05-21 12:02:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður aðalfundar Eikar fasteignafélags hf.


Aðalfundur  Eikar fasteignafélags  hf. var  haldinn fimmtudaginn  21. maí 2015 á
20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi.

Tillögur stjórnar sem lágu fyrir fundinn má finna á www.eik.is/hluthafar
 1. Ársreikningur

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2014.

 2. Ráðstöfun hagnaðar félagins á rekstrarárinu 2014

Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um að greiða 580.000.000 kr. í arð.

 3. Starfskjarastefna félagsins

Aðalfundur  samþykkti  starfskjarastefnu  félagsins  eins  og hún var lögð fyrir
fundinn.

 4. Kjör stjórnar og ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir störf þeirra fyrir
    komandi starfsár

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins:

  * Agla Elísabet Hendriksdóttir
  * Arna Harðardóttir
  * Eyjólfur Árni Rafnsson
  * Frosti Bergsson
  * Stefán Árni Auðólfsson



Aðalfundur samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun myndu verða óbreytt frá ákvörðun
síðasta    aðalfundar.   Laun   stjórnarmanna   nemi   þannig   225.000 kr.   og
stjórnarformaður fái greidd tvöföld laun

 5. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags

Aðalfundur  samþykkti  að  KPMG  ehf.  yrði  endurkjörið  endurskoðunarfyrirtæki
félagsins.

 6. Önnur mál sem löglega eru fram borin

Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum.


[HUG#1923038]