|
|||
2021-10-28 17:40:03 CEST 2021-10-28 17:40:05 CEST REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Sjóvá - Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2021Helstu niðurstöður úr árshlutauppgjöri 3F 2021: Þriðji ársfjórðungur 2021
9M 2021 og uppfærðar horfur
Hermann Björnsson, forstjóri: Áframhaldandi vöxtur er í iðgjöldum bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Í því felst mikið traust í garð félagsins ásamt því að tryggð núverandi viðskiptavina er mikil. Hvoru tveggja hefur leitt af sér iðgjaldavöxt og vaxandi markaðshlutdeild en áherslan er eftir sem áður á arðsemi. Tjónahlutfall á þriðja ársfjórðungi hækkar frá sama tímabili í fyrra og er að vaxa í takt við aukna umferð og almennt aukin umsvif í þjóðfélaginu. Samanburðurinn er þó við sögulega lágt tjónahlutfall á síðasta ári. Tjónahlutfall á fyrstu níu mánuðum ársins lækkar lítillega en hafa ber í huga að á sama tímabili í fyrra féll til eitt stórt tjón ásamt því að iðgjöld voru felld niður um sem nemur 650 m.kr. í ljósi óvenju hagstæðrar tjónaþróunar í kjölfar samkomutakmarkana. Nokkur stærri tjón hafa fallið til á þriðja ársfjórðungi þessa árs þó ekki hafi reynt á endurtryggingavernd vegna þeirra. Tjónaþróun fyrir bæði fjórðunginn og fyrstu níu mánuðina er í takt við áætlanir og útgefnar horfur. Hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins nam 7.372 m.kr. samanborið við 2.338 m.kr. á sama tímabili á síðasta ári. Afkoma af vátryggingastarfsemi eykst frá fyrra ári og afkoma af fjárfestingastarfsemi er töluvert umfram væntingar og skýrist af góðri afkomu af safni skráðra og óskráðra hlutabréfa en þróun á eignamörkuðum hefur haldið áfram að vera hagstæð. Afkoma af fjárfestingastarfseminni skýrir að miklu leyti aukna afkomu frá sama tímabili í fyrra en miklar sveiflur einkenna þann hluta starfseminnar. Samþykkt var á hluthafafundi þann 19. október sl. að lækka hlutafé félagsins um 66.489.362 hluti að nafnvirði með ráðstöfun lækkunarfjárins til hluthafa. Nánar verður upplýst um framkvæmd hlutafjárlækkunarinnar þegar öllum lagaskilyrðum hefur verið fullnægt. Horfur fyrir árið 2021 haldast óbreyttar þar sem gert er ráð fyrir að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði um 2.200 m.kr. og samsett hlutfall um 92%. Horfur til næstu 12 mánaða breytast og nú er gert ráð fyrir að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði um 2.100 m.kr. (var 2.500 m.kr.) og að samsett hlutfall nemi um 93% (var 91%). Rekstur tryggingafélaga sveiflast mjög eftir árferði í efnahagsumhverfi. Þegar vel árar í efnahagslífinu og hjól atvinnulífsins snúast hratt aukast alla jafna tjón sem segja til sín í rekstri og því mikilvægt að fylgjast áfram með þeirri þróun. Sem dæmi var akstur um höfuðborgarsvæðið í september sl. einn sá mesti sem mælst hefur eftir verulegan samdrátt í fyrra. “ Kynningarfundur 28. október kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og vefstreymi Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt beint á slóðinni www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-3f-2021/. Vilji aðilar sem horfa á kynninguna í streymi bera upp spurningar sem tengjast uppgjörinu má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar. Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum. Nánari upplýsingar Meðfylgjandi er fréttatilkynning, samandreginn árshlutareikningur og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna þriðja ársfjórðungs 2021.
Viðhengi
|
|||
|