|
|||
![]() |
|||
2015-02-16 13:10:48 CET 2015-02-16 13:11:49 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga ohf. – Arion banki nýr aðalmiðlariÍ dag, 16. febrúar 2015, var skrifað undir samning milli Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. og Arion banka hf. í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224 og LSS150434. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Arion banki hf. mun hefja viðskiptavakt 19. febrúar 2015. Frá 19. febrúar 2015 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með skuldabréf lánasjóðsins". Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., MP banki hf. og Straumur fjárfestingabanki. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|