2009-08-31 11:03:52 CEST

2009-08-31 11:04:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Afkoma Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2009

Stjórn Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. hefur staðfest árshlutareikning
félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2009. 

•  Hagnaður Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. eftir skatta á fyrri hluta ársins
   2009 nam 8 m.kr. samanborið við 1.157 m.kr fyrir sama tímabil árið 2008.
   Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Nýja Kaupþings banka hf. og
   hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.
•  Hreinar rekstrartekjur á tímabilinu námu 322 m.kr. samanborið við 2.166 m.kr.
   á sama tímabili árið 2008. 

•  Rekstrargjöld á tímabilinu námu 312 m.kr. samanborið við 805 m.kr. á sama
   tímabili árið 2008. 

•  Eigið fé 30. júní árið 2009 nam 1.252 m.kr. skv. efnahagsreikningi miðað við
   3.532 m.kr. 30. júní 2008. Eiginfjárhlutfall, sem reiknað er samkvæmt lögum
   nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, er 20,9%, en má samkvæmt framangreindum
   lögum ekki vera lægra en 8,0%. 

•  Rekstrarfélagið sér m.a. um eignastýringu og rekstur verðbréfasjóða,
   fjárfestingasjóða og fagfjárfestasjóða. Hlutdeildarskírteini ICEQ
   verðbréfasjóðs og skuldabréf fagfjárfestasjóðanna KB ABS 10 og KB ABS 12 hafa
   verið tekin til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf. Sérstakir
   árshlutareikningar eru gerðir fyrir þá sjóði og þeir birtir sérstaklega í
   fréttakerfi OMX. 

•  Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína
   hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi
   glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu þess 30. júní
   2009 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um
   ársreikninga. Í könnunaráritun óháðs endurskoðanda er ábending, þar sem
   vakin er  athygli á skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra ásamt skýringum þar
   sem greint er frá mati á verðbréfum. 

Hægt verður að nálgast árshlutareikning félagsins frá og með deginum í dag hjá
Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Rekstrarfélags Kaupþings banka hf.
veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 444 7464.