2009-08-31 11:09:13 CEST

2009-08-31 11:10:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Afkoma ICEQ verðbréfasjóðs á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2009

Framsetning árshlutareiknings ICEQ verðbréfasjóðs er í samræmi við reglur um
reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
Fjármálaeftirlitinu. 

•  Tap varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu að fjárhæð 15 m.kr. samkvæmt
   rekstrarreikningi og er tapið fært til lækkunar á hlutdeildarskírteinum ICEQ
   verðbréfasjóðs. 

•  Hrein eign sjóðsins nam í lok júní 53 m.kr. skv. efnahagsreikningi.

•  Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína
   hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi
   glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 30. júní 2009
   og breytingu á hreinni eign á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga.
   Í könnunaráritun óháðs endurskoðanda er ábending, þar sem vakin er athygli á
   skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra og skýringu 6, þar sem greint er frá
   mati á verðbréfum.
Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstrarfélag ICEQ
verðbréfasjóðs, nam þann 30. júní 2009 1.252 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um
fjármálafyrirtæki, er 20,9%, en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra
en 8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Nýja Kaupþings bankahf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.
Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag hjá
Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning ICEQ verðbréfasjóðs veitir Sigþór
Jónsson sjóðstjóri í síma 444 6954.