|
|||
2014-05-09 10:37:00 CEST 2014-05-09 10:37:25 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - Changes board/management/auditorsFjarskipti hf.: Stefán Sigurðsson ráðinn forstjóri VodafoneStjórn Vodafone (Fjarskipta hf.) hefur ráðið Stefán Sigurðsson í starf forstjóra Vodafone. Samhliða lætur Ómar Svavarsson af störfum hjá félaginu, en hann hefur verið forstjóri frá árinu 2009. Stefán hefur frá október 2008 gegnt starfi framkvæmdastjóra eignastýringar Íslandsbanka. Hann hefur mikla reynslu af rekstri, stefnumótun og innleiðingu, uppbyggingu sölu og þjónustu til einstaklinga og fagfjárfesta. Hann hefur víðtæka þekkingu á vöruþróun, markaðs- og samskiptamálum. Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður:"Miklar og örar breytingar eiga sér nú stað á fjarskiptamarkaði. Vodafone er leiðandi á markaðnum og ætlar að vera það áfram, með sérstaka áherslu á góða þjónustu, alþjóðlegt vöruframboð og þarfir viðskiptavina. Það er mikill fengur fyrir Vodafone í Stefáni Sigurðssyni og hann mun leiða félagið inn í spennandi framtíð. Ég vil þakka Ómari Svavarssyni fyrir gott, óeigingjarnt og dugmikið starf fyrir félagið, starfsfólk þess og eigendur á miklum umrótartímum." Stefán Sigurðsson, forstjóri:"Vodafone er sterkt og gott fyrirtæki. Það starfar á spennandi markaði og starfsfólk hefur skapað einstakan vinnustað, þar sem fagmennska og metnaður er ríkjandi. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum við áframhaldandi uppbyggingu félagsins á næstu árum." Stefán er með MSc gráðu í hagfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og BSc gráðu á sama sviði frá Háskóla Íslands. Hann er fæddur árið 1972, kvæntur Rögnu Söru Jónsdóttur, forstöðumanni samfélagsábyrgðar hjá Landsvirkjun og eiga þau fjögur börn. [HUG#1784153] |
|||
|