2012-04-27 14:10:44 CEST

2012-04-27 14:11:45 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ísafjarðarbær - Ársreikningur

Ársreikningur Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2011


Meginniðurstöður ársreiknings 2011

Ársreikningur 2011 sem hér birtist er skiptur niður í þrjá kafla; yfirlit og
samstæðureikningur, rekstrar- og efnahagsreikningur og sjóðsstreymi sjóða í A
hluta og sjóða í B hluta, sundurliðun rekstrar deilda og sjóða í A hluta og
sjóða í B hluta. 



Uppgjör ársins 2011 er samkvæmt fyrirmynd í auglýsingu um reikningsskil
sveitarfélaga nr. 790/2001. Rekstrareiningum er skipt í A hluta og B hluta þar
sem í A hluta er aðalsjóður sveitarfélagsins auk annarra stofnana og sjóða sem
fjármagnaðir eru að hluta eða að öllu leyti af skatttekjum. Í B hluta eru
stofnanir og fyrirtæki sveitarfélagsins sem eru að hálfu eða í meirihluta í
eigu sveitarfélagsins en eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar. 



Í samstæðureikningi kemur fram yfirlit rekstrar borið saman við fjárhagsáætlun,
 efnahagsreikningur og sjóðsstreymi. 



Heildarrekstrartekjur bæjarsjóðs og stofnana hans á árinu 2011 voru 3.033
millj.kr. og rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði  2.881 millj.kr., ef frá eru
talin innri viðskipti. Afkoma af reglulegri starfsemi var jákvæð um 152
millj.kr., afskriftir 162 mkr. Afkoma fjármagnsliða var mun verri en í fyrra,
gjöldin voru 291 millj.kr. umfram tekjur og tapið því 301 millj.kr. eftir
fjármagnsliði. Verðbólgan hefur farið vaxandi og krónan veikst, þannig að
niðurstaða fjármagnsliða var mjög slæm miðað við skuldsetningu. 



Afkoma aðalsjóðs og stofnana í A hluta er neikvæð um  76 millj.kr. fyrir
fjármagnsliði og neikvæð um 261 millj.kr. eftir fjármagnsliði. 

Afkoma sjóða í B hluta er jákvæð um 66 millj.kr. fyrir fjármagnsliði, en
neikvæð um 40 millj.kr. eftir fjármagnsliði. 



Heildarveltufjármunir í árslok 2011 voru um 562 millj.kr. að frádregnum kröfum
á eigin fyrirtæki. Heildarfastafjármunir voru um 5.237 millj.kr. í árslok 2011.
Skuldir alls, skammtíma- og langtímaskuldir, voru um 4.312 millj.kr. að
frádregnum kröfum á eignarsjóð og á eigin fyrirtæki. Áfallnar
lífeyrisskuldbindingar voru 1.034 millj.kr. í árslok 2011 og eigið fé 453
millj.kr.