|
|||
![]() |
|||
2012-04-30 10:42:43 CEST 2012-04-30 10:43:44 CEST REGULATED INFORMATION Hampiðjan hf. - Minutes of extraordinary general meeting (is)Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar haldinn 27. apríl sl.Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 27. apríl, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2011 samþykkt samhljóða. Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnar: Bragi Hannesson Meðstjórnendur: Árni Vilhjálmsson Kristján Loftsson Jón Guðmann Pétursson Auður Kristín Árnadóttir Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar: Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 27. apríl 2012 samþykkir að greiddur verði arður til hluthafa að upphæð kr. 124.148.264, sem er 1,9% af eigin fé Hampiðjunnar hf. í árslok. Arðurinn verði greiddur í viku 22. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 27. apríl, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 3. maí. Arðleysisdagurinn er 27. apríl. Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 700.000, formaður fái þrefaldan hlut. Tillaga um endurskoðunarfélag Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers hf. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 27. apríl 2012 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera hæst jafnt síðasta skráða söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð. |
|||
|