2012-04-30 18:55:51 CEST

2012-04-30 18:56:52 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rangárþing ytra - Ársreikningur

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2011




Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2011 var samþykktur á fundi
hreppsráðs mánudaginn 30. apríl 2011 og vísað til endurskoðunar og afgreiðslu í
sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög. 

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem
falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir
alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr.
138/2011. 

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með
skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustustöð. Til B
hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru
í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar
íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf. 

Samkvæmt rekstrarreikningi 2011 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.070,0 millj.
kr. samanborið við 1.015,0 millj. kr. árið 2010. Hækkun milli ára er 5,4%. 

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem
námu samtals 931,7 millj.kr., en voru 928,5 millj. kr. á árinu 2010. Hækkun frá
fyrra ári nemur 0,3%. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2011 námu 20,4 millj.
kr. samanborið við 83,7 millj. kr. árið 2010. Lækkun fjármagnsgjalda umfram
fjármunatekjur milli ára skýrist af endurútreikningi á gengistryggðum lánum á
árinu 2011. 

Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 120,6 millj. kr. fyrir A og B hluta
samanborið við 4,9 millj. kr. á árinu 2010.