|
|||
![]() |
|||
2012-05-02 17:00:00 CEST 2012-05-02 17:00:04 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirTilkynning frá Orkuveitu ReykjavíkurÍ samræmi við samþykkt stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur 18. nóvember 2011 hafa eignarhlutir fyrirtækisins í HS Veitum hf. verið auglýstir til sölu. Þeir eru 221.609.343 eða 16,58% heildarhlutafjár. Aðrir eigendur HS Veitna hf. eru einnig að selja eignarhluti sína í félaginu, að hluta eða öllu leyti, sbr. neðangreinda tilkynningu Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka, sem hefur umsjón með sölunni. 34,38% hlutur í HS Veitum hf. í söluferli - Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka falið að annast söluferli - Söluferlið opið öllum fjárfestum sem uppfylla tilgreind skilyrði Reykjavík 2. maí 2012 Eigendur að 34,38% hlut í HS Veitum hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á eignarhlut sínum í félaginu. Þessi hlutur er í dag í eigu Reykjanesbæjar, Orkuveitu Reykjavíkur, Grindavíkurbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga. Skiptast auglýstir hlutir svo: -- Reykjanesbær auglýsir 222.492.830 hluti eða 16,65% heildarhlutafjár. Ekki eru auglýstir 669.550.929 hlutir eða 50,1% heildarhlutafjár í HS Veitum. -- Orkuveita Reykjavíkur auglýsir 221.609.343 hluti eða 16,58% heildarhlutafjár. -- Grindavíkurbær auglýsir 6.802.886 hluti eða 0,51% heildarhlutafjár. -- Sandgerðisbær auglýsir 2.979.974 hluti eða 0,22% heildarhlutafjár. Ekki eru auglýstir 1.336.429 hlutir eða 0,1% heildarhlutafjár. -- Garður auglýsir 4.277.099 hluti eða 0,32% heildarhlutafjár. -- Vogar auglýsa 1.331.573 hluti eða 0,10% heildarhlutafjár. HS Veitur hf. eru dreifiveita rafmagns samkvæmt Raforkulögum nr. 65/2003 og annast að auki dreifingu heits vatns og ferskvatns á starfssvæðum sínum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Reykjanesbæ en jafnframt eru starfsstöðvar í Árborg, Hafnarfirði og í Vestmannaeyjum. Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði um að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, auk aðila sem búa yfir fullnægjandi þekkingu og reynslu og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 300 milljónir kr. Seljendur áskilja sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna. Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka í síma 440 4000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið hsveitur2012@islandsbanki.is. Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar afhentar frekari upplýsingar um tímasetningar og skilmála söluferlisins auk upplýsinga um fjárhag og starfsemi félagsins. Einnig tilkynnir Orkuveitan að fulltrúar fyrirtækisins eiga í viðræðum við lánveitendur um endurröðun gjalddaga lána. |
|||
|