|
|||
2008-06-18 11:35:41 CEST 2008-06-18 11:36:41 CEST REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - FyrirtækjafréttirMarel Food Systems semur um viðskiptavakt við GlitniMarel Food Systems hf. hefur gert samning við Glitni hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands hf. Glitnir skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll Íslands, í hlutabréf Marel Food Systems (MARL) að lágmarki 200.000 kr. að nafnvirði á gengi sem Glitnir ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Glitnir er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 100.000.000 að markaðsvirði. |
|||
|