2008-06-18 11:41:00 CEST

2008-06-18 11:42:00 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
365 hf. - Fyrirtækjafréttir

365 hf. mun leggja fyrir hluthafafund tillögu um að sækja um skráningu úr kauphöll OMX


Stjórn 365 hf. hefur samþykkt að boða til hluthafafundar þann 1. júlí
næstkomandi og leggja fyrir hluthafa félagsins tillögu um skráningu félagsins
úr Kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi. Að fengnu samþykki hluthafafundar
mun 365 hf. gera þeim hluthöfum sem þess óska tilboð um að kaupa hluti þeirra í
365 hf. Yfir 85% hluthafa hafa skuldbundið sig til að taka þátt í afskráningu
með því að afsala sér rétti til tilboðsins og verða því áfram hluthafar í 365
hf. 

Að fengnu samþykki hluthafafundar þann 1. júlí mun öllum hluthöfum standa til
boða að halda hlutum sínum í 365 hf. sem verður óskráð félag. Þeim hluthöfum
sem þess óska verður boðið að selja hluti sína í 365 hf. og verður kaupverð
hluta í tilboði til hluthafa 1.2  á hlut, sem er meðalgengi 30 daga til og með
16. júní, þegar ákvörðun stjórnar var tekin. 

Ari Edwald, forstjóri 365 hf. : 
„Þessi niðurstaða endurspeglar að stjórn félagsins telur það ekki þjóna
hagsmunum félagsins og hluthafa þess, eins og aðstæður hafa þróast á markaði,
að vera skráð í kauphöll. Á undanförnum misserum hefur tekist vel að bæta
rekstur félagsins, sem byggir nú á færri einingum með sterka stöðu. Hins vegar
eru blikur á lofti í rekstrarumhverfi fjölmiðlafyrirtækja eins og víðast í
íslensku atvinnulífi, sem kann að gera skráningu óhentugri áfram. Tekjur af
auglýsingum munu dragast saman, en þær eru helsta tekjulind fjölmiðla.
Jafnframt er ljóst að niðurgreiðsla af skattfé til eins samkeppnisaðilans á
auglýsingamarkaðnum, sem nemur meira en fjórðungi heildar auglýsingatekna allra
dagblaða, útvarps- og sjónvarpsstöðva á Íslandi, felur í sér beina atlögu að
rekstrargrundvelli allra einkarekinna fjölmiðlafyrirtækja í landinu. Það eru
alvarleg tíðindi fyrir öll þessi fyrirtæki að Samkeppniseftirlitið telur sig
ekki hafa stöðu til að afstýra þessari samkeppnislegu mismunun. Má reikna með
að fjölmiðlafyrirtæki verði undir mikilli pressu á næstu mánuðum, að leita
allra leiða til að hagræða í rekstri sínum.“