|
|||
2008-06-19 18:56:37 CEST 2008-06-19 18:57:37 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirTilkynning vegna sérstakrar aðgerðar ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálumRíkisstjórn Íslands sendi frá sér í dag yfirlýsingu vegna sérstakra aðgerða í húsnæðismálum. Aðgerðunum er ætlað að koma til móts við minnkandi umsvif á fasteignamarkaði m.a. vegna lausafjárerfiðleika á lánamörkuðum. Aðgerðir þessar, þ.e. lánveitingar til banka, sparisjóða og annarra fjármálafyrirtækja vegna íbúðalána, hækkun hámarksláns Íbúðalánasjóðs, afnám viðmiðunar á lánum sjóðsins við brunabótamat og auknar heimildir vegna almennra leiguíbúðalána, munu hafa áhrif til hækkunar á áætlaðri útgáfu íbúðabréfa. Ný áætlun um útlán, útgáfu íbúðabréfa og greiðslur Íbúðalánasjóðs á árinu 2008 verður birt á OMX Nordic Exchange á Íslandi í júlí 2008. Yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar má nálgast í meðfylgjandi skjali. |
|||
|