2017-06-06 11:39:34 CEST

2017-06-06 11:39:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lýsing hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lýsing hf: Útboð á víxlum 8. júní 2017


Lýsing hf. efnir til útboðs á víxlum fimmtudaginn 8. júní 2017. Boðnir verða til
sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki LYSING171215.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Útboðið verður
með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu
vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og
verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 fimmtudaginn 8. júní og uppgjör viðskipta
fer fram þann 15. júní 2017. Tilboðum skal skilað á netfangið
markets@arctica.is.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50.
greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir
skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru
birt á vefsíðu félagsins, www.lysing.is/lysing/starfsemin/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840
4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is,
s:896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lýsingar hf., sighvatur@lysing.is, s:540
1700



[]