|
|||
2011-10-28 19:07:05 CEST 2011-10-28 19:08:08 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - ÁrsreikningurUppgjör Nýherja hf. á þriðja ársfjórðungi 2011.Hagnaður Nýherja hf. fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta - EBITDA - nam 376 mkr fyrstu níu mánuði 2011. Helstu niðurstöður: -- EBITDA var 77 mkr á þriðja ársfjórðungi, en var 169 mkr á sama tímabili árið á undan. -- Heildarhagnaður var 18 mkr fyrstu 9 mánuði ársins. -- 90 mkr tap er hjá Applicon í Danmörku í ársfjórðungnum vegna tafa við afhendingu hugbúnaðarlausnar. -- Rekstur og afkoma allra annarra rekstrareininga og dótturfélaga samstæðunnar í takt við áætlanir. -- Nýherji hefur samið við Landsbanka Íslands um að annast viðskiptavakt með hlutabréf félagsins. Þórður Sverrisson, forstjóri: „Afkoma Nýherjasamstæðunnar er undir áætlunum í ársfjórðungnum. Afkoma allra eininga og dótturfélaga samstæðunnar er í takt við áætlanir, ef frá er talin Applicon A/S í Danmörku. Félagið hefur ásamt samstarfsfyrirtæki í Danmörku unnið að innleiðingu og afhendingu á umfangsmikilli lausn fyrir opinberan aðila og hafa tafir við afhendingu lausnarinnar valdið verulegum viðbótarkostnaði fyrir Applicon. Rekstur annarra eininga samstæðunnar hefur verið ágætur og horfur góðar í fjórða ársfjórðungi“. Sjá viðhengi. |
|||
|