|
|||
![]() |
|||
2016-07-25 10:00:46 CEST 2016-07-25 10:00:46 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 29 keyptu Fjarskipti hf. 577.498 eigin hluti að kaupverði 25.785.286 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 19.07.2016 14:01 27.498 44,65 1.227.786 -------------------------------------------------------------------- 20.07.2016 13:25 550.000 44,65 24.557.500 -------------------------------------------------------------------- Samtals 577.498 25.785.286 Er hér um að ræða kaup Fjarskipta á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2016. Fjarskipti áttu 4.249.288 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 4.826.786 eigin hluti eða sem nemur 1,77% af útgefnum hlutum í félaginu. Fjarskipti hafa keypt samtals 2.658.086 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,98% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 117.149.309 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 6.734.000 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#2030284] |
|||
|