2022-12-02 16:15:40 CET

2022-12-02 16:15:40 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Kvika banki hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 1. desember sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 2.150.000 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Samkvæmt 19. gr. laga um upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 skal útgefandi, ef hann hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum, við fyrsta tækifæri og eigi síðar en á síðasta viðskiptadegi mánaðar birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.


Framangreind hlutafjárhækkun hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.924.271.980 að nafnvirði. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé utan eigin hluta. Af framangreindum hlutum á bankinn í dag 147.871.265 eigin hluti.  


Óskað hefur verið eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og sótt hefur verið um töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.