2010-08-30 15:28:45 CEST

2010-08-30 15:29:44 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsvirkjun - Ársreikningur

Afkoma Landsvirkjunar fyrstu sex mánuði ársins 2010


Árshlutareikningur Landsvirkjunar var í dag, 30. ágúst 2010, samþykktur á fundi
stjórnar. Reikningurinn er samstæðureikningur sem tekur til Landsvirkjunar og
dótturfélaga. 

Helstu atriði árshlutareiknings janúar til júní 2010 eru þessi:

•  Handbært fé frá rekstri nam 110 milljónum USD eða um 13,3 milljörðum króna á
   núverandi gengi.

•  Hagnaður tímabilsins nam tæpum 16 milljónum USD sem svarar til 1,9 milljarða
   króna á núverandi gengi.

•  EBITDA nam 143,8 milljónum USD að teknu tilliti til áhrifa innleystra
   áhættuvarna tengdum álverði. EBITDA hlutfall er 80% af veltu.

•  Mat á virði innbyggðra afleiða í tengslum við orkusölusamninga fyrirtækisins
   lækkaði um 183,2 milljónir USD á tímabilinu en álverð var fremur lágt í lok
   júní. 

•  Sem fyrr er aðhalds gætt í rekstri og fjárfestingum og áhersla lögð á
   lausafjárstýringu.

   o Fjárfestingar voru um 25 milljónir USD á tímabilinu samanborið við 60
     milljónir USD á sama tímabili árið 2009.

   o Afborganir lána voru 98 milljónir USD umfram nýjar lántökur.

   o Handbært fé í lok júní nam 179 milljónum USD en að auki hefur fyrirtækið
     aðgang að samningsbundnu veltiláni og er óádreginn hluti þess 282
     milljónir USD. Laust fé er því alls um 461 milljón USD eða sem nemur um
     55 milljörðum króna. Laust fé ásamt fé frá rekstri dugar til að mæta öllum
     núverandi skuldbindingum fyrirtækisins út árið 2012.

   o Helstu kennitölur sýna áframhaldandi jákvæða þróun í rekstri fyrirtækisins.

•  Heildareignir Landsvirkjunar nema 4,6 milljörðum USD eða um 552 milljörðum
   króna á núverandi gengi. Nettó vaxtaberandi skuldir nema 2,6 milljörðum USD
   og hafa lækkað um 263 milljónir USD frá áramótum.

•  Eigið fé Landsvirkjunar nam 1,6 milljörðum USD eða sem svarar til um 190
   milljarða króna á núverandi gengi. Eiginfjárhlutfall var 34,5%.

Árshlutareikningur Landsvirkjunar er gerður samkvæmt alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum (IFRS) og er hann í Bandaríkjadölum sem er
starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins. Samkvæmt IFRS eru innleystar
áhættuvarnir vegna álverðstengingar í orkusölusamningum færðar á meðal
fjármunatekna og fjármagnsgjalda. Stjórnendur Landsvirkjunar telja gefa gleggri
mynd af rekstri fyrirtækisins að færa innleystar álvarnir með tekjum
fyrirtækisins og birta einnig rekstrarreikning með þeim hætti í sérstöku
yfirliti sem er fremst í árshlutareikningnum.  Breytingin hefur ekki áhrif á
afkomu, efnahag eða sjóðstreymi, en hún hefur áhrif á einstaka liði innan
rekstrarreikningsins. 

Tekjur samstæðunnar námu 180 milljónum USD á tímabilinu en voru 179 milljónir
USD á sama tímabili árið áður að teknu tilliti til áhættuvarna og eru því
svipaðar á milli tímabila.  Á tímabilinu janúar til júní 2010 gjaldfærði
fyrirtækið 4,8 milljónir USD vegna samninga við erlendar fjármálastofnanir
vegna álvarna en á sama tímabili 2009 tekjufærði fyrirtækið 40 milljónir USD
vegna áhættuvarnarsamninga.  Innleystar áhættuvarnir eru færðar meðal
fjármunatekna og fjármagnsgjalda í árshlutareikningnum.  Þar eru einnig færð
vaxtagjöld sem lækkuðu úr 45,9 milljónum USD á fyrstu 6 mánuðum ársins 2009 í
39,4 milljónir USD á sama tímabili í ár, einkum vegna lækkunar millibankavaxta
í Bandaríkjunum og Evrópu. Rekstrarkostnaður án afskrifta og virðisrýrnunar nam
36 milljónum USD á tímabilinu en var 34,9 milljónir USD á sama tímabili árið
áður.  Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 70 milljónum USD á tímabilinu
án áhættuvarna en voru 27,9 milljónir USD á sama tímabili árið áður sem skýrist
aðallega af lækkun á gangvirði innbyggðra afleiða í orkusölusamningum sem
tengdir eru álverði og jákvæðum gjaldeyrismun. Gangvirðisbreytingar og
gengishagnaður eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við
mat á afkomu fyrirtækisins.  Meðalnafnvextir langtímalána voru um 2,2% á
tímabilinu en þeir voru um 2,5% árið áður. 

Landsvirkjun mun ekki ráðast í nýjar framkvæmdir nema að fjármögnun þeirra sé
tryggð. Fyrirspurnir og heimsóknir frá hugsanlegum orkukaupendum sýna að
eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun er mikil og vonast fyrirtækið eftir
því að það skili sér í hærra orkuverði í nýjum sölusamningum. 

Nánari upplýsingar veitir Kristján Gunnarsson, starfandi framkvæmdastjóri
fjármálasviðs, í síma 515 9000.