2008-08-29 18:18:14 CEST

2008-08-29 18:19:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Ársreikningur

- Afkoma á fyrri árshelmingi 2008


Afkoma á fyrri árshelmingi 2008

•  Tekjur á fyrri árshelmingi 3.248,2 mkr. og aukast um 28% milli ára.

•  EBITDA afkoma batnaði um 77 mkr. og var 288 mkr.

•  Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur 632 mkr. þar af nam gengistap 497 mkr.

•  471,7 mkr. tap á fyrri árshelmingi, en  121,6 mkr. hagnaður árið áður.

•  Afkoma versnar milli ára vegna hækkunar fjármagnsgjalda.

Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. sem Sláturfélagið á að öllu leyti. 

Tap samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2008 var
471,7 mkr.  Á sama tímabili árið áður var 121,6 mkr. hagnaður.  Eigið fé
Sláturfélagsins er tæpar 1.106 mkr. í lok júní. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 3.248 mkr. á fyrri
árshelmingi ársins 2008, en 2.545 mkr. á sama tíma árið áður og hækka því um
tæp 28%.  Aðrar tekjur voru 22 mkr en 21 mkr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 1.760 mkr. en 1.206 mkr. árið áður.  Launakostnaður
hækkaði um tæp 7%, annar rekstrarkostnaður hækkaði um rúm 6% og afskriftir
hækkuðu um rúm 4%.  Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var
165 mkr., en 94 mkr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir
(EBITDA) var 288 mkr.  en var 211 mkr. á sama tíma í fyrra. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 632 mkr., en fjármunatekjur voru 9
mkr. umfram fjármagnsgjöld á sama tímabili í fyrra.  Gengistap nam rúmum 497
mkr. samanborið við 56 mkr. gengishagnað árið áður.  Engin hlutabréf voru seld
en hagnaður af sölu hlutabréfa árið áður var 2 mkr.  Hlutdeild í afkomu
hlutdeildarfélaga var neikvæð um 7 mkr. en jákvæð árið áður um 17 mkr.  Tap af
rekstri tímabilsins var 471,7 mkr. en 121,6 mkr. hagnaður var á sama tímabili
árið áður. 

Veltufé frá rekstri var 214 mkr. á fyrri árshelmingi ársins 2008, samanborið
við 145 mkr. fyrir sama tímabil árið 2007.  Heildareignir Sláturfélagsins 30.
júní  voru 5.438 mkr. og eiginfjárhlutfall 20%.  Veltufjárhlutfall var 1,6 á
fyrri hluta ársins 2008, en 2,6 árið áður. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2008 var í aprílmánuði greiddur
15,86% arður af B-deild stofnsjóðs alls 28 mkr. og reiknaðir 10,0% vextir á
A-deild stofnsjóðs alls 24 mkr. 

Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti í samræmi við
heimildir í reglum félaga á Tilboðsmarkaði Kauphallar Íslands.  Ráðgert er að
birta afkomu ársins 2008 þann 20. febrúar 2009. 


Staða og horfur
Hátt vaxtastig og mikil veiking krónunnar hafði mjög neikvæð áhrif á afkomu SS
á fyrri hluta ársins.  Velta félagsins jókst umtalsvert eða um 28% sem er
jákvætt í erfiðu árferði á sama tíma og kostnaðarliðir aðrir en vörunotkun
hækkuðu um rúm 6%. Þróun fjármagnsliða á seinni hluta ársins mun ráða miklu um
afkomu félagsins á árinu. 

Áburður, kjarnfóður og aðrir helstu kostnaðarliðir við afurðaframleiðslu hafa
hækkað mjög mikið að undanförnu, í raun meira en áður hefur þekkst bæði vegna
gengislækkunar krónunnar og erlendra kostnaðarhækkana.  Bændur geta ekki tekið
á sig þessar miklu hækkanir á framleiðslukostnaði án þess að til komi hækkun á
afurðaverði. Þetta mun því óhjákvæmilega leiða til hækkunar á kjötafurðum á
komandi mánuðum. 

Á árinu 2009 mun útflutningsskylda falla niður á dilkakjöti.  Af þessum sökum
ríkir talsverð óvissa um afkomu kjötgreina undir lok næsta árs. Hækkun á
aðföngum bænda til framleiðslu afurða og niðurfelling útflutningsskyldu eykur
þörf fyrir hagræðingu hjá bændum og afurðafyrirtækjum.  Einnig þarf íslenskur
landbúnaður að búa sig undir aukin innflutning samfara lækkun innflutningstolla
á landbúnaðarvörum með  áframhaldandi hagræðingu. Óhemjuhátt vaxtastig hér á
landi ásamt gengislækkun krónunnar hefur veikt íslenskan landbúnað og annan
atvinnurekstur og því brýnt að snúa þeirri þróun við. 

Kjötiðnaður félagsins stendur vel með fjölbreytt vöruval og öfluga vöruþróun.
Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur aukið hlutdeild sína á markaði enda mörg
vörumerki deildarinnar vel þekkt á heimsvísu.  Sala á tilbúnum áburði til bænda
í samstarfi við Yara í Noregi hefur aukist umtalsvert milli ára.  Innflutningur
á kjarnfóðri er hafinn í samstarfi við DLG í Danmörku en fóðurverð hér á landi
hefur verið mun hærra en í nágrannalöndum okkur.  Með innkomu SS á fóðurmarkað
aukast valkostir bænda auk þess sem mikilvægt er að bændur hér á landi eigi
aðgang að úrvalsfóðri á hagstæðu verði til að þeir séu betur í stakk búnir til
að lækka framleiðslukostnað. 

Nánari upplýsingar veitir Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000