|
|||
2013-12-16 10:33:43 CET 2013-12-16 10:34:44 CET REGULATED INFORMATION Landsbréf hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumBreytingar á stjórn LandsbréfaÁ hluthafafundi Landsbréfa hf. sem haldinn var eftir lokun markaða þann 13. desember 2013 urðu þær breytingar á stjórn Landsbréfa hf. að Halldóra G. Hinriksdóttir sem setið hefur í stjórn félagsins síðan júní 2012, Helga Friðriksdóttir, sem setið hefur í stjórn félagsins síðan í nóvember 2012, og Jón Steindór Valdimarsson, sem setið hefur í stjórn félagsins síðan apríl 2012, létu af störfum. Í þeirra stað voru kjörin þau Helga Gunnarsdóttir, viðskiptafræðingur, Jón Þór Grímsson, lögfræðingur og Sigríður Hrund Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur. Í kjölfar fundarins var Sigurbjörn Jón Gunnarsson kjörinn formaður stjórnar, en hann hefur setið í stjórn félagsins síðan í maí 2012. Nánari upplýsingar veitir Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 821-2065 eða sigthor.jonsson@landsbref.is. |
|||
|