2017-05-08 17:48:13 CEST

2017-05-08 17:48:13 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 18. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.050.000 eigin hluti fyrir
108.150.000 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin   Tími       Keyptir  Viðskipta-v     Kaupverð      Eigin hlutir eftir
g                       hlutir          erð                            viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
2.5.2017   15:13       350.000        102,5   35.875.000               1.079.308
--------------------------------------------------------------------------------
3.5.2017   12:18       350.000          103   36.050.000               1.429.308
--------------------------------------------------------------------------------
4.5.2017   10:40       350.000        103,5   36.225.000               1.779.308
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals              1.050.000               108.150.000                        
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 24. mars 2017. 

Reitir hafa nú keypt samtals 1.779.308 hluti í félaginu sem samsvarar 11,86% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 179.911.340 krónum sem samsvarar
11,99% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú
samtals 1.779.308 hluti, eða 0,25% af heildarhlutafé félagsins eins og það
verður eftir að lækkun hlutafjár sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann
14. mars sl. hefur formlega verið skráð. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á
aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við
hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.