2017-05-08 18:26:59 CEST

2017-05-08 18:26:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýtt skipurit Sjóvár


Miðvikudaginn 3. maí var tilkynnt um fækkun í framkvæmdastjórn Sjóvár sem mun í
framhaldinu skipuð 4 framkvæmdastjórum auk forstjóra. Nýtt skipurit hefur verið
aðlagað að þessum breytingum. Elín Þórunn Eiríksdóttir sem var framkvæmdastjóri
Viðskiptaþróunar mun taka við sem framkvæmdastjóri Rekstrar og þróunar auk þess
sem vöruþróun sem var undir Viðskiptaþróun mun færast með henni undir Rekstur
og þróun. Með því er ætlunin er að efla enn frekar samstarf þróunar og
upplýsingatækni meðal annars við þróun stafrænna lausna. Stofnstýring sem áður
heyrði undir Viðskiptaþróun mun færast undir Fjármál og mun Birgir Viðarsson
veita þeirri deild forstöðu. Markaðsmál og forvarnir sem áður voru undir
Viðskiptaþróun munu færast undir Sölu og ráðgjöf og munu þannig færast nær
beinni sölu og þjónustu í skipulagi. 

Hjálagt fylgir nýtt skipurit.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Björnsson forstjóri í síma 440-2000