|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-07-10 18:30:59 CEST 2017-07-10 18:30:59 CEST SÄÄNNELTY TIETO Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsSjóvá: Leiðrétting - Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum... - Frétt send 2017-07-10 11:00:00 CETLeiðrétting - Misritun í töflu varðandi keypta hluti þann 6.7.2017 - hið rétta er 555.500 en ekki 555.000. Að öðru leyti allar tölur réttar.
Í viku 27 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 3.571.000 eigin hluti að kaupverð 64.463.800 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017. Sjóvá átti 31.749.630 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 35.320.630 eigin hluti eða sem nemur 2,37% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 27.239.098 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,83% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 503.395.849 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|