|
|||
![]() |
|||
2017-07-10 20:20:30 CEST 2017-07-10 20:20:30 CEST SÄÄNNELTY TIETO Reitir II ehf. - InnherjaupplýsingarSkuldabréfaflokkurinn LAFL 03 1 áfram skráður í kauphöllEins og fram kom í tilkynningu þann 22. maí sl. kannaði Reitir II ehf. afstöðu eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum LAFL 03 1 til afskráningar skuldabréfaflokksins úr kauphöll, en afskráningin er fyrirhuguð í tengslum við skipulagsbreytingar í samstæðu Reita fasteignafélags hf. Niðurstaða framangreindra viðræðna er sú að skuldabréfaflokkurinn verður áfram skráður í kauphöll að svo stöddu. Nafni útgefanda mun verða breytt í „Norðurslóð 4 ehf.“ og er ráðgert að sú breyting verði skráð á næstu dögum. Engar breytingar verða gerðar á skuldabréfunum, tryggingum fyrir þeim eða öðru sem þeim tengist. Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson í síma 575 9000 eða 669 4416. |
|||
|