2008-06-18 11:35:41 CEST

2008-06-18 11:36:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel Food Systems semur um viðskiptavakt við Glitni


Marel Food Systems hf. hefur gert samning við Glitni hf. um viðskiptavakt á
útgefnum hlutabréfum félagsins. 
Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins
í Kauphöll Íslands hf. 
Glitnir skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í
Kauphöll Íslands, í hlutabréf Marel Food Systems (MARL) að lágmarki 200.000 kr.
að nafnvirði á gengi sem Glitnir ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup-
og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta
viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem
Glitnir er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 100.000.000 að
markaðsvirði.