2009-05-05 10:44:11 CEST

2009-05-05 10:45:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétt: Straumur frestar birtingu ársreiknings



5. maí 2009

Þann 9. mars tók Fjármálaeftirlitið yfir vald hluthafafundar
Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur), vék stjórn
bankans frá störfum og skipaði Straumi skilanefnd sem tók við öllum
heimildum stjórnar félagsins. Nýr forstjóri Straums var ráðinn til
starfa þann 17 mars.

Þann 19. mars veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Straumi heimild til
greiðslustöðvunar sem gildir til 11. júní 2009, sbr. tilkynningu frá
Straumi þann 19. mars.

Endurskipulagning Straums stendur nú yfir og hefur framkvæmdastjórn
bankans fundað með lánveitendum í þeim tilgangi að endurskipuleggja
rekstur félagsins og koma nýrri skipan á fjármál þess, sbr.
tilkynningar frá Straumi 30. mars og 17. apríl s.l.

Vegna framangreindra aðstæðna er vinnu við gerð ársreikning Straums
fyrir árið 2008 enn ekki lokið. Ráðgert er að þeirri vinnu ljúki í
maí og að þá verði unnt að birta ársreikninginn opinberlega, sbr. 57.
gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Fjármálaeftirlitið hefur orðið við beiðni Straums um að fresta skilum
á ársuppgjöri til loka maí nk. Sú heimild nær ekki til þess að fresta
birtingu ársreikningsins eins og ráða mátti af fyrri tilkynningu.

Nánari upplýsingar veitir:
Georg Andersen
Forstöðumaður Samskiptasviðs
S:+354 585 6707
georg@straumur.com