2011-03-24 17:37:03 CET

2011-03-24 17:38:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvaki - Ársreikningur

Landsvaki hf. - Reikningsskil 2010



Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði
Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2010. Í lok
ársins 2010 annaðist Landsvaki hf. rekstur 21 sjóða um sameiginlega
fjárfestingu en á árinu voru stofnaðir 2 nýir sjóðir og 2 sjóðum var slitið.  Í
árslok nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 53,4 milljörðum króna
samanborið við 44 milljarða í árslok 2009. 

Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi.

  -- Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
     ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning
     verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða.  Þessi framsetning á
     reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
     verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu.
  -- Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af KPMG sem telur að
     reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu
     2010, efnahag þess 31. desember 2010 og breytingu á handbæru fé og hreinni
     eign sjóðanna á árinu 2010, í samræmi við lög og settar
     reikningsskilareglur.

Bæði skuldabréfa- og hlutabréfamarkaðir eru enn verulega laskaðir eftir áföll
fjármálakreppunnar og mikið vantar enn upp á skilvirkni og dýpt. Þróun þessara
markaða hefur mikil áhrif á rekstur sjóða Landsvaka auk þess sem vaxtalækkanir,
minnkandi verðbólga og almenn efnahagsþróun hefur áhrif á stöðu félagsins. 

Eftir að heildareignir í stýringu minnkuðu verulega í kjölfar falls bankanna í
byrjun október 2008 hafa aðstæður breyst til batnaðar. Þróunin á árinu 2010 var
sjóðum Landsvaka tiltölulega hagstæð og jukust eignir i stýringu um 23%.  Stærð
skuldabréfasjóða jókst þannig um 100% og stærð innlendra hlutabréfasjóða jókst
um 148%.  Markaðshlutdeild félagsins jókst á árinu og ávöxtun sjóða félagsins
var einnig vel ásættanleg miðað við hefðbundin viðmið. 

Tap var af rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 13 milljónir króna samkvæmt
rekstrarreikningi félagsins.  Eigið fé Landsvaka hf. í lok ársins nam 310
milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Eiginfjárhlutfall félagsins, sem
reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 83% en þetta hlutfall má
ekki vera lægra en 8% samkvæmt lögum. 



Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Ari Skúlason,
framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7406.