2008-12-08 16:26:18 CET

2008-12-08 16:27:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Exista hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

- Breytingar á hlutafé Exista


Í samræmi við samþykkt hluthafafundar Exista 30. október síðastliðnum hefur
stjórn Exista ákveðið að auka hlutafé í félaginu um 50 milljarða hluta, eins og
fram kom í tilkynningu til Kauphallar frá 4. desember, í skiptum fyrir 1
milljarða hluta í Kvakki ehf. Hlutafé eftir hækkun nemur 64.174.767.632 hluta.

Þessi viðskipti fela í sér að fyrri eigendur Kvakks ehf., Ágúst Guðmundsson og
Lýður Guðmundsson, leggja Exista til 1,0 milljarð króna í reiðufé. 

Eftir kaupin nemur eignarhlutur BBR ehf. og Bakkabraedur Holding B.V., sem bæði
eru í eigu Ágústs Guðmundssonar og Lýðs Guðmundssonar, samtals  88% af
heildarhlutafé Exista. Í samræmi við ákvæði X. kafla laga nr. 108/2007 um
verðbréfaviðskipti  mun BBR ehf. því leggja fram yfirtökutilboð í  bréf annarra
hluthafa Exista hf. Tilboðsyfirlit þar sem skilmálar tilboðs koma fram verður
birt innan fjögurra vikna. 

Tillaga um niðurfærslu hlutafjár
Stjórn Exista hf. mun leggja til við  hluthafafund Exista hf. síðar í þessum
mánuði að hlutafé verði fært niður um allt að 98%. Niðurfærsla hlutafjár þýðir
að fjöldi hluta fer úr 64.174.767.632, hver að nafnverði 1 króna, í um það bil
1.283.495.353 hluti, hver að nafnverði 1 króna. 

Tillaga um forgangsréttarútboð
Jafnframt hyggst stjórnin leggja fram tillögu um heimild til hlutafjáraukningar
í formi forgangaréttarútboðs til hluthafa á næsta ári. Markmið stjórnar með
forgangsréttarútboði væri að gefa hluthöfum kost á þátttöku í enduruppbyggingu
Exista ef núverandi viðræður við fjármálastofnanir skila árangri sem tryggja
framtíð félagsins. Verð hluta í forgangsréttarútboði mun samsvara verði í
framangreindum viðskiptum eða 1,0 króna á hlut að teknu tilliti til niðurfærslu
hlutafjár. Í ljósi núverandi óvissu um framtíð Exista telur stjórnin hins vegar
varhugavert að boða til almenns hlutafjárútboðs fyrr en staða félagsins
gagnvart bönkum og lánardrottnum hefur skýrst frekar. 



Nánari upplýsingar:

Samskiptasvið Exista
Sigurður Nordal
framkvæmdarstjóri
Sími: 550 8620
ir@exista.com