2008-12-08 16:52:18 CET

2008-12-08 16:53:16 CET


Islandic English
Exista hf. - Yfirtökutilboð

Yfirtökutilboð til hluthafa Exista hf.


Eins og fram kemur í tilkynningu Exista hf. í dag, 8. desember, hefur BBR ehf.
ákveðið að skrifa sig fyrir nýju hlutafé í Exista hf. sem nemur 50 milljörðum
hluta. Í kjölfarið nemur eignarhlutur BBR ehf. og Bakkabraedur Holding B.V., en
bæði félögin eru í eigu Ágústs Guðmundssonar og Lýðs Guðmundssonar, samtals um
88% af heildarhlutafé Exista. BBR ehf. ber því samkvæmt X. kafla laga nr.
108/2007 um verðbréfaviðskipti að leggja fram yfirtökutilboð til hluthafa í
Exista hf. 

Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem nú ríkja á fjármálamörkuðum og þess að
lokað hefur verið fyrir viðskipti með hlutabréf Exista um 9 vikna skeið mun BBR
ehf. fara þess á leit við Fjármálaeftirlitið að veitt verði undanþága frá
ákvæðum verðbréfaviðskiptalaga um lágmarksverð í yfirtökutilboði. Mun BBR ehf.
óska þess að lagt verði til grundvallar í yfirtökutilboðinu það verð sem BBR
ehf. greiðir fyrir hina nýju hluti í Exista hf., sem jafnframt er hæsta verð
sem BBR ehf. og Bakkabraedur Holding B.V. hafa greitt fyrir hluti í Exista hf.
á síðastliðnum 6 mánuðum. Þannig mun BBR ehf. óska þess að fallið verði frá
skilyrðum um að tilboðsverðið skuli að lágmarki vera jafnhátt og síðasta
viðskiptaverð hluta í Exista hf. daginn áður en tilboðsskylda myndaðist eða
tilkynnt var um fyrirhugað tilboð. Farið verður fram á þessa undanþágu í ljósi
þess að lokað hefur verið fyrir viðskipti með Exista síðan 6. október 2008,
þannig að síðasta dagslokaverð hlutabréfa Exista hf. gefur vart rétta mynd af
verði hlutabréfa félagsins.