|
|||
2012-06-05 15:29:25 CEST 2012-06-05 15:30:26 CEST REGULATED INFORMATION Eyrir Invest ehf. - FyrirtækjafréttirEyrir Invest hf. Niðurstöður hluthafafundarHluthafafundur Eyris Invest ehf. („félagið“), var haldinn í húsakynnum félagsins að Skólavörðustíg 13, Reykjavík, þriðjudaginn 5. júní 2012, kl. 12:00. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á fundinum: 1. Breyting félagsins úr einkahlutafélagi í hlutafélag Tillaga um að breyta félaginu úr einkahlutafélagi í hlutafélag í samræmi við ákvæði 107. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög var samþykkt. 2. Rafræn skráning hluta Tillaga um að skrá hlutafé félagsins með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 131/1997 um rafræna eignaskráningu verðbréfa var samþykkt. 3. Breyting samþykkta - meðferð hluta Tillaga um að afnema allar hömlur á meðferð hluta í félaginu var samþykkt. 4. Önnur mál Engin önnur mál voru rædd á fundinum. Viðeigandi breytingar hafa verið gerðar á samþykktum félagsins. |
|||
|