2014-03-10 10:15:21 CET

2014-03-10 10:16:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Hluthafafundir

Framboð til stjórnar Nýherja á aðalfundi félagsins 14. mars 2014


Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Nýherja hf.,
sem kjörin verður á aðalfundi 14. mars næstkomandi. 



S T J Ó R N



Benedikt Jóhannesson, kt. 040555-2699, Selvogsgrunni 27, 104 Reykjavík.

Störf:

Núverandi starf er framkvæmdastjóri Talnakönnunar hf. og Heims hf. 
Stjórnarformaður í Nýherja hf.  Fyrri störf: Stjórnarformaður VÍS 2012-13,
stjórnarmaður í N1 o.fl. 

Menntun:
Ph.D í tölfræði og stærðfræði , MS í Tölfræði , BS í stærðfræði og hagfræði.

Eign og tengsl:
Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr.  12.499.030.

Engin hagsmunatengsl eru við stóra viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.



Hildur Dungal, kt: 140571-3859, Blikanes 28, 210 Garðabær.

Störf:

Lögfræðingur. Situr einnig í stjórn Fjarskipta hf., Fáfnir Offshore hf. og
Expeda ehf. Núverandi stjórnarmaður í Nýherja hf. 

Menntun:

Embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands 2000.

Eign og tengsl:

Hlutafjáreign engin.

Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.



Marta Kristín Lárusdóttir, kt: 080663-2269, Geitastekkur 2, 109 Reykjavík.

Störf:
Lektor í Tölvunarfræðideild við Háskólann í Reykjavík. Núverandi stjórnarmaður
í Nýherja hf. 

Menntun:

PhD frá Konunglega tæknilega háskólanum (KTH) í Stokkhólmi, Lic. Ph. í
tölvunarfræði frá Uppsalaháskóla, MS í tölvunarfræði frá Kaupmannahafnarháskóla
og BS í tölvunarfræði frá HÍ. 

Eign og tengsl:
Hlutafjáreign engin.
Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.



Ný framboð 2014:

Ágúst Sindri Karlsson, kt. 010863-4149, Fléttuvöllum 11, 221 Hafnarfirði.


Störf:
Framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Arkea ehf. og rekur samhliða því
lögmannsþjónustu. 

Menntun:
Lögfræðingur frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 1990 og meistaragráðu (LL.M) í
alþjóðlegum viðskiptarétti frá Exeter University í Englandi 1995.  Réttindi
málflutnings fyrir Hæstarétti (hri). Starfsréttindi sem verðbréfamiðlari og
fasteigna, fyrirtækja og skipasali. 

Eign og tengsl:

Bein hlutafjáreign engin.

Eigandi 25% hlutafjár í VPS ehf. sem á 35.095.699 hluti eða 8,77% hlut í
Nýherja hf. 

Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.



Loftur Bjarni Gíslason, kt. 120374-3469, Drekavöllum 45, 221 Hafnarfirði.

Störf:
Útgerðarstjóri ísfiskskipa hjá HB Granda hf. Ekki skráður sem framkvæmdastjóri
eða stjórnarmaður í öðrum félögum. 

Menntun:
Stúdentspróf frá Fjölbraut í Garðabæ árið 1995. Með B.Sc gráðu í
sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2007. 

Eign og tengsl:

Engin bein hlutafjáreign í Nýherja hf.

Engin hagsmunatengsl við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.

Tengdur fjölskylduböndum við stjórnendur félaganna Vænting hf. og
Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. sem eiga sameiginlega 23,69% hlutafé í Nýherja. 



Varamaður í stjórn

Guðmundur Jóh. Jónsson, kt: 041159 2439, Kópavogsbakki 15, 200 Kópavogur.

Störf:

Framkvæmdastjóri Varðar trygginga hf. og Varðar líftrygginga hf., núverandi
stjórnarmaður í Nýherja hf. 

Menntun:

Viðskiptafræðingur frá Seattle University, MBA frá Edinborgarháskóla.

Eign og tengsl:

Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr.  539.164.

Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.