|
|||
![]() |
|||
2013-09-13 18:53:32 CEST 2013-09-13 18:54:12 CEST SÄÄNNELTY TIETO Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : 3 ma. kr. víxlaútboði lokiðÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 5 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 5 mánaða víxillinn á 6,15% flötum vöxtum (verð: 97,4528) og 6 mánaða víxillinn á 6,20% flötum vöxtum (verð: 96,9770). Tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1,5 ma. kr. að nafnvirði og að fjárhæð 1,5 ma.kr. í 6 mánaða víxilinn. Alls eru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 10,45 ma. kr. . Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 20. september næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187. Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1729239] |
|||
|