2010-04-21 16:31:19 CEST

2010-04-21 16:32:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eyrir Invest ehf. - Niðurstöður hluthafafunda

Niðurstöður aðalfundar


Fundurinn kaus eftirfarandi einstaklinga í stjórn félagsins til næsta
aðalfundar;
Hermann Már Þórisson, kt. 090872-5409, aðalmaður.
Jón Helgi Guðmundsson, kt. 200547-3149, aðalmaður.
Ólafur Guðmundsson, kt. 221069-3239, aðalmaður.
Sigurjón Jónsson, kt. 271249-4629, aðalmaður.
Þórður Magnússon, kt. 150549-4939, aðalmaður.
Steinunn Jónsdóttir, kt. 270568-3439, varamaður.

Stjórn félagsins hefur skipt með sér verkum og er Þórður Magnússon áfram
stjórnarformaður félagsins.

Fundurinn samþykkti breytingar á eftirfarandi greinum í samþykktum félagsin þar
sem 3., 4. og 5. mgr. 5. gr. samþykkta félagsins falla niður og í stað þeirra
kemur ný málsgrein er verður 3. mgr. 5. gr. og hljóðar svo:

Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé þess um allt að 201.536.244 hluti
með útgáfu nýrra hluta. Stjórn félagsins er heimilt að ákveða ráðstöfun
áskriftarréttar að hinum nýju hlutum sem og að ákveða gengi og önnur
áskriftarkjör. Hluthafar falla frá forgangsrétti til áskriftar að hinum nýju
hlutum í samræmi við 24. gr. laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Stjórn
félagsins getur heimilað einstökum hluthöfum í ákveðnum tilfellum að skrifa sig
fyrir áskrift nýrra hluta, að hluta eða heild. 
Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og bera sömu réttindi og aðrir
hlutir í félaginu. Heimildin gildir í átján mánuði, að því leyti sem hún hefur
ekki verið nýtt fyrir það tímamark.