2010-04-21 18:55:00 CEST

2010-04-21 18:55:12 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Fljótsdalshérað - Ársreikningur

Ársreikningur 2009


Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2009 var lagður fram til fyrri umræðu
í bæjarstjórn miðvikudaginn 21. apríl 2010. Samkvæmt sveitarstjórnalögum skal
fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður seinni
umræðan í bæjarstjórn miðvikudaginn 5. maí næstkomandi. 

Breytingar á reikningsskilaaðferðum

Í ársreikningi Fljótsdalshéraðs eru tekin inn tilmæli Reikningsskila- og
upplýsinganefndar sveitarfélaga frá því í mars og apríl 2010 um meðferð
leigusamninga fasteigna í bókhaldi sem og færslu á lóðum og lendum.   Reglur
þessar taka þegar gildi og skal þeim beitt við reikningsskil sveitarfélaga
fyrir árið 2010 með heimildarákvæði til að taka þau inn í ársreikning 2009 sem
Fljótsdalshérað hefur þegar gert í framlögðum ársreikningi.  Þau sveitarfélög
sem ekki nýta sér fyrrgreinda heimild við gerð ársreiknings 2009, skulu ljúka
gerð upphafsefnahagsreiknings 1. janúar 2010 fyrir 30. júní 2010. 

Rekstarafgangur 245 millj. kr.

Rekstarafgangur A og B hluta bæjarsjóðs fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 
245 millj. kr. sem er 30 millj. kr. betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í
samþykktri áætlun ársins 2009 og 197 millj. betri niðurstaða en á árinu 2008. 

Heildartekjur A og B hluta námu 2.436 millj. kr., þar af eru skatttekjur og
framlög Jöfnunarsjóðs 1.758 millj. kr. og aðrar tekjur nema 674 millj. kr. 
Tekjur eru því um 25 millj. kr. hærri en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun
ársins 2009. 

Heildarútgjöld án afskrifta og fjármagnsliða námu 2.191 millj. kr. á árinu 2009
sem er um 6 millj. hærra en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.  Að teknu
tilliti til afskrifta og fjármagnsliða nema heildarútgjöld  2.436 millj. kr. á
árinu 2009 sem er um 92 millj. kr. hærra en samþykkt fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir. 

Bati á rekstri 175 millj. kr.

Rekstarafkoma fyrir fjármagnsliði er jákvæð á árinu 2009 um 67 millj. kr.
samanborið við að vera neikvæð um 108 millj. kr. árinu 2008.   Batinn er því um
175 millj. kr. sem markast af stærstum hluta annarsvegar af meiri tekjum
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem var í samræmi við væntingar þar um og hinsvegar
að verulegur árangur náðist í hagræðingu í almennum rekstri.
Ef bornir eru saman fjármagnsliðir á milli ára þá námu fjármagnsgjöld 483
millj. kr. á árinu 2009 á móti 696 millj. kr. á árinu 2008 sem er 213 millj.
kr. lækkun. 

Þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta og fjármagnsliða nemur halli á
rekstri samstæðu  sveitarfélagsins um 408 millj. kr. 

Fljótsdalshérað fjármagnar framkvæmdir við Egilsstaðaskóla

Í forsendum fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 sem samþykkt var endurskoðuð þann
16. júní 2009 var gert ráð fyrir að Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. myndi
innleysa til sín eigi síðar en 1. ágúst 2009 áfallnar fjárfestingar
Fasteignafélags Fljótdalshéraðs ehf í viðbyggingu við Egilsstaðaskóla. 
Fasteignafélag Fljótsdalshéraðs er að fullu í eigu Fljótsdalshéraðs. Það varð
ekki reyndin og niðurstaðan var á endanum sú að framkvæmdin og fjármögnun var
alfarið á hendi Fljótsdalshéraðs. Það hafði töluverð áhrif á niðurstöðu
fjármagnsliða á árinu 2009.  Nú hefur verið gengið frá fjármögnun þess
verkefnis og að eignarhald verði á hendi Fljótdalshéraðs. 

Fjárfestingar á árinu 2009 námu 1.184 millj. kr.  Þar af námu fjárfestingar
A-hluta um 1.012 millj. kr.  Stærsta einstaka framkvæmdin er viðbygging
Egilsstaðaskóla en þar nam heildarkostnaður um 793 millj. kr.  Fjárfestingar
Hitaveitunnar námu 168 millj. kr. sem að langstærstum hluta er vegna nýrrar
kaldavatnsveitu sem virkjuð var á árinu og lögð ný stofnæð.  Gatnaframkvæmdir
námu nettó um 84 millj. kr.  Aðrar stærri framkvæmdir eru vegna uppbyggingar á
nýju tjaldsvæði, bílastæði og lóð við Fellaskóla, fjárfestingar í tengslum við
byggingu reiðhallar á Iðavöllum, frekari uppbygging á sorpmóttökustöð, hönnun
viðbyggingar leikskólans Hádegishöfða í Fellabæ, deiliskipulagsgerð og síðan
fjárfestingar vegna Sláturhússins -  Menningarseturs ehf.

Efnahagsreikningur 31.12.2009: Sjá viðhengi.

Sjóðstreymi ársins 2009: Sjá viðhengi.

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

Í ljósi hallareksturs á árinu 2008 hefur Eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga verið með rekstur sveitarfélagsins til athugunar. Með bréfi sínu
þann 13. apríl sl. tilkynnir nefndin að hún muni ekki aðhafast frekar í málinu.
Ákvörðunin byggir á þeim gögnum sem sveitarfélagið hefur lagt fram þar sem m.a.
er gert ráð fyrir viðsnúningi í rekstri og að afgangur verði af rekstrinum.
Eftirlitsnefndin muni þó áfram fylgjast með framvindu rekstrar og
fjárhagsáætlunar. 

Fjárhagsáætlun 2010 - 2013

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti 3ja ára áætlun fyrir sveitarfélagið á
fundi sínum þann 3. febrúar 2010 sem jafnframt var endurskoðun á fjárhagsáætlun
fyrir árið 2010.  Þar er gert ráð fyrir jákvæðum rekstarafgangi öll árin 2010
til 2013 og að hann fari vaxandi.  Jafnfram var samþykkt að halda áfram að
leita leiða til frekari hagræðingar í rekstri því mikilvægt er til lengri tíma
að reksturinn skili afgangi. 

Áhrif efnahagskreppunnar frá árinu 2008 hafa haft veruleg áhrif á tekjur
sveitarfélagsins og var nefndum sveitarfélagsins falið að fara enn frekar ofan
í reksturinn og leita leiða til hagræðingar.  Í stórum dráttum má segja að
verulegur árangur hafi náðst. Á móti hefur tekjuhliðin haldist þar sem framlög
Jöfnunarsjóðs hafa hækkað á móti lækkun útsvarstekna   Ekki þykir ráðlegt að
gera ráð fyrir að niðurstaða fáist á árinu 2010 í málarekstur sveitarfélagsins
þess efnis að vatnshlunnindi og stíflumannvirki vegna Kárahnjúkavirkjunar verði
metin til fasteignamats og skili fasteignaskattstekjum. Það mál hefur nú verið
í vinnslu  í um 8 ár. 

Þar sem tekjur sveitarfélagsins af framlögum frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
hafa verið verulega skertar undanfarin ár vegna mikilla tekna á liðnum árum er
þess að vænta að framlögin hækki nokkuð á árinu 2010 vegna lækkunar meðaltekna
sl. en muni ekki skila sér að fullu fyrr en árið 2011.  Sveitarfélagið hefur á
árinu þurft að afskrifa áætlaðar tekjur vegna starfsmanna á virkjanasvæðinu um
allt að 100 milljónir en sú upphæð hefur m.a. haft áhrif á lækkun á framlögum
Jöfnunarsjóðs. 

Í kjölfar efnahagshrunsins fyrir rúmu ári hafa fjármálin verið reglulega til
umfjöllunar í bæjarráði og bæjarstjórn.  Fjármál hafa haft fastan dagskrárlið á
bæjarráðsfundum og ýmislegt hefur áunnist í hagræðingu í rekstrinum.  Má þar
nefna að rekstur málaflokka aðalsjóðs, án skatttekna,  hefur lækkað um tæpar
140 millj. kr. á milli upphaflegrar áætlunar 2009 og samþykktar áætlunar 2010. 
Við endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 sem samþykkt var í byrjun sumars það ár
var farið í enn frekari hagræðingar og í framhaldi af því vann bæjarráð að því 
með deildarstjórum og öðrum starfsmönnum að leita enn frekari
hagræðingarmöguleika.  Til sumra var hægt að ganga strax,  aðrar aðgerðir
þurftu sinn aðlögunartíma og eru að birtast í þeim tölum sem lagðar eru fram í
fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 og síðar.  Þar vega aðgerðir í stóru
málaflokkunum þyngst í krónutölu, þ.e. í fræðslumálum og  íþrótta- og
æskulýðsmálum.
Allar aðgerðir fram að þessu hafa miðast við að viðhalda því þjónustustigi sem
sveitarfélagið hefur boðið upp á undanfarin ár.