2010-04-21 20:24:22 CEST

2010-04-21 20:25:22 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Mosfellsbær - Ársreikningur

Ársreikningur 2009


Rekstrarafgangur hjá Mosfellsbæ fyrir fjármagnsliði
Ársreikningur Mosfellsbæjar 2009 kynntur í bæjarstjórn í dag


Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2009 var kynntur á 534. fundi
bæjarstjórnar miðvikudaginn 21. apríl 2010 og honum vísað til seinni umræðu sem
er fyrirhuguð er 5. maí. 

Rekstur sveitarfélagsins á árinu 2009 gekk vel ef tekið er tillit til þess
krefjandi efnahagsumhverfis sem við búum nú við. Rekstrarafgangur af A-hluta að
undanskildum fjármagnsgjöldum var 126 milljónir króna. Fjármagnsgjöld voru
rúmar 460 milljónir, þar af verðbætur og gengistap 314 milljónir og er því
rekstrarhalli á A-hluta sem nemur um 322 milljónum á árinu 2009.  Veltufé frá
rekstri er jákvætt. 

Starfsfólk Mosfellsbæjar hefur sýnt mikla ráðdeild í rekstri stofnana en hefur
um leið staðið vörð um velferð og fjölskylduna í þeim áætlunum sem unnið hefur
verið eftir. Útsvar í Mosfellsbæ er undir leyfilegu hámarki og gjaldskrár fyrir
þjónustu lækkuðu að raunvirði á árinu. Er það liður í því markmiði
Mosfellsbæjar að reyna að koma í veg fyrir að auknar álögur leggist á heimilin.
Tekist hefur að stilla rekstur sveitarfélagsins af á móti tekjum með
ásættanlegri rekstrarniðurstöðu A-hluta stofnana fyrir fjármagnsliði. 

Niðurstaða úr ársreikningi er í samræmi við áætlun ársins. Gert hafði verið ráð
fyrir halla í rekstri á árinu 2009 og að fullt jafnvægi verði í rekstri á árinu
2010. Í þriggja ára áætlun Mosfellsbæjar er hins vegar gert ráð fyrir því að
hallinn verði unninn upp og bæjarsjóði verði skilað með hagnaði á árinu 2011. 

Eiginfjárhlutfall hefur farið hækkandi jafnt og þétt á undanförnum árum.
Mosfellsbær nýtur trausts á lánsmörkuðum og tók lán á hagstæðum kjörum fyrir
stórum framkvæmdum á árinu 2009, svo sem byggingu nýs leik- og grunnskóla,
Krikaskóla. Mosfellsbær er eitt af fáum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu þar
sem íbúafjölgun var milli ára og því brýnt að halda áfram nauðsynlegri
uppbyggingu sé þess kostur. Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins nema
samtals um 6,9 milljörðum en bókfært verðmæti eigna er 10,4 milljarðar og er
eigið fé því 3,5 milljarðar. 

Að meðtöldum B-hluta stofnunum var jákvæð rekstrarniðurstaða upp á 367
milljónir að undanskildum fjármannsliðum. Vaxtagjöld og gengistap var 652
milljónir og er niðurstaðan því neikvæð upp á 267 milljónir. 

Ársreikning bæjarsjóðs Mosfellsbæjar má nálgast á slóðinni:
www.mos.is/stjornsysla/fjarmal 

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, forstöðumaður
kynningarmála hjá Mosfellsbæ,  s. 894 9050/525 6708 sigridurdogg@mos.is Sjá
nánar: www.mos.is 

Lykiltölur úr ársreikningi Mosfellsbæjar 2009: Sjá viðhengi.